 |
|
|
|
| VEÐUR ..0 |
| Hraun |
: |
0 |
0°C |
| Bergstaðir |
: |
0 |
0°C |
| Sauðanesv. |
: |
0 |
0°C |
| Reykjavík |
: |
0 |
0°C |
| Nautabú |
: |
0 |
0°C |
| Akureyri |
: |
0 |
0°C |
| Blönduós |
: |
0 |
0°C |
|
| PISTLAR
|
|
|

 |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |

Dagskráin Það er alltaf nóg um að vera í Skagafirði - ef ekki, þá eru Skagfirðingar að skemmta og skemmta sér annars staðar. Hér fyrir neðan gefur að líta lista yfir alls kyns uppákomur, fundi og kappleiki. Athugið að sumir liðirnir fara fram utan héraðs. Bent skal á að það er vel þegið að lesendur sendi upplýsingar um dagskrá til okkar á hinir@skagafjordur.com og við færum það inn á dagskrá við fyrsta tækifæri.
skagafjordur.com | 08. september 2010 - kl. 11:15 - 08. september 2010 - kl. 12:30 Vísindi og grautur Hólar í Hjaltadal
Hin árlega fyrirlestrarröð ferðamáladeildar Háskólans á Hólum Vísindi og grautur hefur göngu sína miðvikudaginn 8. sept. og það er Kristín Jónsdóttir, verkefnastjóri Á Sturlungaslóð sem ríður á vaðið. Kristín er íslenskufræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun flytur hún erindi sem hún kallar Sögustund í Skagafirði með ýmsum miðlunarleiðum. Erindið er um meistaraverkefni hennar frá Háskóla Íslands vorið 2009 þar sem hún útbjó leiðsögn fyrir vegfarendur um hluta Skagafjarðar. Í erindinu segir Kristín frá því hvað farið var af stað með í upphafi, þróunina í vinnslunni og hver niðurstaðan var. Fyrirlesturinn er haldin í kennslustofu ferðamáladeildar á 2. hæð í skólahúsinu á Hólum og hefst kl. 11:15. Áhugasamir geta keypt hádegismat í veitingasal ferðaþjónustunar í kjölfarið.
Til baka |
|
 |
 |
|
|
BILUÐ PLATA 34/2009 Hinn ágæti Hannes Hólmsteinn fór mikinn í morgunógleði Ríkisútvarpsins á dögunum, ræddi þar kreppuna og kepptist sem fyrr við að verja Davíð Oddsson. Hannes var eins og biluð plata sem hjakkaði í sama farinu... enginn sá þetta fyrir, nema Davíð Oddsson auðvitað, meira að segja ég sá þetta ekki... og svo framvegis. Nú má auðvitað deila um það hvort Hannes hafi rétt fyrir sér en mikið óskaplega var þessi bilaða plata þreytandi og leiðinleg til lengdar og nokkuð ljóst að orð Hannesar hafa örugglega gert Dabba karlinum meira ógagn en gagn. ::meira
|
EKKERT LJÓS Í MYRKRINU? 33/2009 Herra Hundfúll er ekki hrifinn af myrkrinu. Hann hefur heyrt því fleygt að í stóru kreppunni á síðustu öld hafi bæjarbúar skotist milli húsa í myrkrinu lamaðir af myrkfælni. Nú í vikunni hefur verið dimmt á kvöldin á Króknum, enda þungt yfir og rigning, en í götunni sem Hundfúll býr í og í næsta nágrenni hafa ekki verið ljós á ljósastaurunum. Hvort það þykir við hæfi hjá sveitarfélaginu og Rarik í núverandi kreppu að hverfa til myrkurs stóru kreppunnar skal ósagt látið en það er hálf undarlegt að ekki sé haft ljós á ljósastaurunum þegar kvöldin eru orðin svört af myrkri. En kannski er þetta sparnaðarráð í kreppunni? ::meira
|
|
 |
LITTLE BOOTS >> NEW IN TOWN >> 33/2009 Það hafa ekki verið neitt stórmerkilegar melódíurnar sem sest hafa á heilann þetta sumarið og sumarsmellirnir frekar fjörlitlir. Hér skal þó mælt með einu lagi sem getur alveg límt sig á heilann. Victoria Hesketh sem kallar sig Little Boots hefur verið að gera það gott með lagið New In Town. Flott lag. ::meira
|
GRAN TORINO 33/2009 Gran Torino er sögð síðasta myndin sem Clint Eastwood leikur í. Í raun er um lágstemmda mynd að ræða, Clint leikur leiðinda karlskarf sem þolir hvorki nágranna sína eða fjölskyldu. Hann er nýbúinn að missa konuna sína en honum að óvörum reynast Kóreubúarnir í næsta húsi vera hið vænsta fólk og með þeim tekst vinátta. Nágrannarnir lenda upp á kant við hverfisklíkuna og þá tekur sá gamli málin í sínar hendur. Eastwood er í hörkustuði og töffararnir verða ekki svalari en hann. Stjörnur **** ::meira
|
JÖKULSÁRLÓN TEKIÐ VIÐ SEM DÝPSTA VATN ÍSLANDS >> 1. júlí Rosalega hlýtur Öskjuvatn að vera svekkt? ::meira
|
HIÐ SKELFILEGA VUVUZELA >> 26/2009 Útlit er fyrir að Vuvuzela-trompetinn muni ógna geðheilsu fótboltaáhugamanna næsta sumar. Þeir sem fylgst hafa með útsendingum frá Álfukeppninni í knattspyrnu ættu að vera farnir að átta sig á þessu skelfilega vopni Afríkumanna. Höddi Magg hitti naglann á höfuðið þegar hann lýsti þessu skelfilega hljóði sem trompetarnir mynda við suðið í býflugum í þúsundasta veldi. Margir vilja banna vopnið en eins og staðan er í dag er það ólíklegt. ::meira
|
|
|