Fasteignasala Sauðárkróks


Fasteignasala Sauðárkróks 
Suðurgötu 3
550 Sauðákróki
Símar: 453 5900 &
864 5889
Fax 453 5931

Ágúst Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Sölumaður:
Anna J. Hjartardóttir
Netfang: strimill@simnet.is

 

Lindargata 13, Sauðárkróki

Einbýlishús úr timbri, alls 92,2 m2

Til söu er húseignin við Lindargötu 13, Sauðárkróki. Einbýlishús úr timbri, hæð, ris og kjallari. Húsið var byggt 1871 og telst elsta hús á Króknum. Húsið hefur nú verið gert vandlega upp að utanverðu. Það var klætt að utan og einangrað um leið með steinull. Þak, gluggar og útihurðir voru einnig endurnýjaðar.  Innanstokks er flest gamalt, þó var baðherbergi gert allt upp haustið 2010 og lagðar nýjar frárennslislagnir út götu. Inngangur er frá Lindargötunni, einnig er inngangur að norðanverðu þar sem er aðstaða fyrir þvottavél. Þar við er baðherbergi með sturtu og hita í gólfi. Í eldhúsi er gömul hvítmáluð innrétting og dúkur á gólfi. Í íbúðinni eru þrjú dúklögð herbergi og anddyri. Ganga má frá eldhúsi niður í kjallara. Úr einu herbergja er útgangur á hellulagða verönd vestan við húsið.  Í risi má hafa tvö herbergi. Kjallari er þurr og þar eru nýlegar miðstöðvarlagnir. Kjallarinn er nú nýttur sem geymsla.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími  453 5900.

 

:: meira

Sumarhús við Reykjarhólsveg, Varmahlíð í Skagafirði

Bjálkahús, 4 herbergja

AFL sparisjóður býður til sölu, fjögur sumarhús,  staðsett  sunnan Reykjarhóls við Varmahlíð, nánar til tekið við Reykjarhólsveg nr. 16A, 18A, 18B og 20A.  Svæðið er vel gróið og skjólsælt. Stutt er í þjónustu til Varmahlíðar. Húsin eru öll sömu gerðar, reist árið 2006, 60,9 m2 að stærð.  Þau eru í nokkuð góðu ástandi að utan svo sem þak, þakantar og gluggar. Pallur er við öll húsin og setlaug. Í húsunum eru 3 herbergi, anddyri, baðherbegi með sturtuklefa og stofa þar sem er eldhúskrókur með viðarinnréttingu. Parket er á gólfum. Húsin seljast með húsbúnaði og í því ásigkomulagi sem þau eru.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignirnar.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900. 

:: meira

Víðigrund 2, Sauðárkróki

Þriggja herbergja íbúð á efstu hæð

Til sölu er 77,2 m2  þriggja herbergja íbúð á efstu hæð, í austur hluta fjölbýlishússins við Víðigrund 2, Sauðárkróki. Íbúðinni fylgir 4,6 m2 sérgeymsla á jarðhæð.  Lokið er við að klæða og einangra vesturgafl hússins. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, annað með skápum. Skápar er einnig á gangi við herbergin. Anddyri og stofa eru með parketi á gólfum og loft þar eru klædd spónlögðum plötum. Gengið út á suðursvalir úr stofunni.  Í eldhúsi er viðarinnrétting og flísar á gólfi. Baðherbergi er á milli herbergjanna að norðan, þar eru hvít tæki og tengi fyrir þvottavél.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900 

:: meira
Suðurgata 11B, Skr.
Suðurgata 11B, Skr.

Suðurgata 11B, Sauðárkróki

Einbýlishús, tvær hæðir og ris

Til sölu er húseignin við Suðurgötu 11B, Sauðárkóki. Húsið er alls 119 m2 að stærð, steypt upp árið 1929. Eignin er heilleg að utanverðu svo sem þakjárn, múrhúð, gluggar og útihurð. Inngangur um steyptar tröppur að austan. Geymsla er undir tröppum.  Að innanverðu eru allar innréttingar, lagnir og gólfefni gamalt nema í einu herbergja. Á neðri hæð er baðherbergi, herbergi, þvottahús og geymslur. Á miðhæð er stofa, eldhús og tvö herbergi. Ris er einangrað en óinnréttað að öðru leyti.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900.

:: meira

Húsgrunnur við Kvistahlíð 8, Sauðárkróki

Til sölu er húsgrunnur og lóð við Kvistahlíð 8, Sauðárkróki. Lokið er við að steypa sökkla. Fyrir liggja teikningar af húsinu unnar af verkfræðistofunni Stoð á Sauðárkróki. Skv. teikningu er húsið á einni hæð,  144 m2 að stærð og bílskúr 42,1 m2.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina

Nánari upplýsinar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900

:: meira

Hólmagrund 11, Sauðárkróki

Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr

Til sölu er húseignin við Hólmagrund 11, Sauðárkróki. Steypt einbýlishús, byggt 1962. Íbúðin er alls 186 m2 og bílskúr á neðri hæð er 29,7 m2. Eignin er í góðu ástandi m.v. aldur. M.a var þakjárn og miðstöðvarlagnir endurnýjaðar fyrir nokkrum árum. Húsið er nýmálað að utan og að hluta til að innan. Snyrtileg lóð. Heimreið að bílskúr er hellulögð með hitalögn.  Í syðri hluta hæðarinnar er forstofa, eldhús í ágætu ástandi, forstofa, stofa og tvö herbergi. Nokkrum tröppum ofan í norður hluta eru þrjú herbergi, innréttað eldhús, baðherbergi og geymsla. Þann hluta má auðveldlega leigja út. Sér inngangur er að austan. Inngangur að norðan til neðri hæðar þar sem er bílskúr, þvottahús, sturtuaðstaða og geymslur.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni

:: meira

Birkihlíð 37, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr

Til sölu er húseignin við Birkihlíð 37, Sauðárkróki, steypt einbýlishús á einni hæð, byggt 1971. Íbúðin er 4 herbergja, 113 m2. Með fylgir 47 m2 bílskúr, byggður 1978. Húsið er í nokkuð góðu ástandi að utanverðu. Herbergi eru dúklögð, eikarparket er á stofu og gangi. Viðarinnrétting er í eldhúsi og dúkur á gólfi. Baðherbergi og snyrting. Forstofa er flísalögð. Sérinngangur í þvottahús. Þar við er geymsla. Timburpallur með skjólgirðingu sunnan við húsið. 

Til greina koma skipti á minni íbúð.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Skagfirðingabraut 49, neðri hæð, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð, 87 m2

Til sölu er íbúð á neðri hæð hússins við Skagfirðingabraut 49, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1970. Íbúðin er tveggja herbergja. Inngangur að norðan í sameiginlegt flísalagt þvottahús. Þar við er geymsla. Í eldhúsi er hvít innrétting og ljósbrúnar flísar á gólfi. Stofa er að sunnnverðu í íbúðinni með plastparketi á gólfi. Herbergi með plastparketi og skápum. Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítum tækjum og skáp.

Nýlegar miðstöðvarlagnir eru í íbúðinni.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Grenihlíð 32, neðri hæð, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð

Til sölu er tveggja herbergja 79,2 m2 íbúð á jarðhæð raðhússins við Grenihlíð 32, Sauðárkróki. Húsið sem var steypt 1989, er í þokkalegu ástandi að utanverðu. Malbikuð heimreið. Í íbúðinni er: Flísalögð forstofa. Innihurðir úr ljósum spónlögðum viði. Gangur og stofa með eikarparketi. Skápar eru við ganginn. Frá stofu er útgangur til lóðar vestan við húsið. Baðherbergi með ljósum gólfdúk, kari og hvítum tækjum ásamt skápi og innréttingu. Eldhús með  viðarinnréttingu og ljósum gólfdúk. Við eldhúsið er geymsla. Herbergi, dúklagt með skápum. Gott útsýni úr eldhúsglugga.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Ægisstígur 2, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð

Til sölu er tveggja herbergja, 54 m2 íbúð í norðurhluta hússins við Ægisstíg 2, Sauðárkróki. Húsið var upphaflega byggt úr timbri, en múrhúðað síðar.  Eignin er í þokkalegu ástandi að utan. Parket er á gólfum íbúðarinnar. Á baðherbergi er sturtuklefi, hvít tæki og gólfdúkur. Hvít innrétting í eldhúsi. Skápar eru í öðru herbergjanna.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900

:: meira

Skagfirðingabraut 33, efri hæð, Sauðárkróki

4 herbergja íbúð, 106,8 m2. Með fylgir 32,4 m2 bílskúr.

Til sölu er efri hæð hússins við Skagfirðingabraut 33, Sauðárkróki. Steypt tvíbýlishús, byggt 1948. Húsið er í þokkalegu ástandi að utanverðu. Svalir að sunnan. Lóð er vel girt. Í íbúðinni eru þrjú herbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Í eldhúsi er viðarinnrétting, ný tæki og parket á gólfi. Bað er flísalagt með nuddkari. Eikarparket á gólfum. Nýjar miðstöðvarlagnir. Snyrtileg íbúð. Með fylgir bílskúr sunnan við húsið, byggður 1972. Eigendur hafa áhuga á skiptum á stærri eign.

Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900.

:: meira

Grenihlíð 8, Sauðárkróki

Raðhús á tveimur hæðum, alls 125 m2

Til sölu er steypt raðhús við Grenihlíð 8, Sauðárkróki, byggt 1980. Íbúðin er þriggja herbergja,  89 m2 og bílskúr 36 m2. Húsið hefur nýlega verið málað að utan. Vestan við það er nýr timburpallur með skjólgirðingu. Gluggar og hurðir er í ágætu ástandi. Á neðri hæð er frágenginn bílskúr með afþiljaðri geymslu innst, flísalagt anddyri og gangur, baðherbergi og geymsla. Skápar eru í anddyri. Á efri hæð eru tvö dúklögð herbergi, annað með skápum, stofa með plastparketi og eldhús með hvítri innréttingu.

Snyrtileg eign.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900

:: meira

Skagfirðingabraut 1, neðri hæð, Sauðárkróki

Þriggja herbergja, 57,1 m2 íbúð.

Til sölu er þriggja herbergja íbúð á neðri hæð hússins við Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki. Húsið er í þokkalegu ástandi að utanverðu, m.a. nýlegt þakjárn og rennur. Gluggar virðast ófúnir og hurðir.  Inngangur frá Skagfirðingabraut í físalagða forstofu. Tvö samliggjandi herbergi að sunnan með parketi. Herbergi að norðan, dúklagt og með skápum. Eldhús með dúk á gólfi og hvítri innréttingu með rennihurðum. Inn af eldhúsi að norðan er baðherbergi með flísalögðu gólfi og sturtuklefa, hvítum tækjum og hvítri innréttingu. Þvottahús við eldhús. Afhending getur farið fram 1. ágúst 2011.

Ásett verð 8 miljónir króna.

Allt húsið fæst fyrir 16 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Skagfirðingabraut 1, efri hæð, Sauðárkróki

4 herbergja 88,9 m2 íbúð.

Til sölu er íbúð á efri hæð hússins við Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1929. Nýlegt járn er á þaki og rennur, gluggar virðast í sæmilegu lagi svo og útihurð. Inngangur er á neðri hæð að sunnanverðu. Anddyri er dúklagt. Við anddyrið er dúklagt herbergi með tengi fyrir þvottavél. Þokkalegt plastparket er á efri hæð nema á baðherherbergi. Frá stigapalli er gengið út á suðursvalir. Lítið herbergi við stigapall. Baðherbergi er með hvítum tækjum og kari, dúk á gólfi.  Eldhús með viðarlitaðri innréttingu. Stofa að sunnan og vestan með panelklæddum veggum.Suður- og vesturveggur hafa verið einangraðir með steinull. Herbergi að norðvestan. Geymsla á háalofti.

Ásett verð er 10,5 miljónir króna.  Neðri hæð hússins er einnig til sölu.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Freyjugata 26, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð í risi

Til sölu er tveggja herbergja, 36,6 m2 risíbúð í suðurhluta hússins við Freyjugötu 26, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1954. Eignin er í þokkalegu ástandi að utanverðu. Íbúðin skiptist í eldhús með hvítri innréttingu með beykilistum,  tvö herbergi með plastparketi á gólfum og baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa, hvítum tækjum og gólfdúk.

Ásett verð 6 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Borgarflöt 3, Sauðárkróki

Iðnaðarhúsnæði á einni hæð

Rarik ohf. býður til sölu iðnaðarhúsnæði  við Borgarflöt 3, Sauðárkróki. Húsið er alls 349 m2 að stærð, byggt 1979. Veggir eru steyptir og stálgrind í þaki. Tvær stórar hurðir eru á vesturhlið. Þeim megin er malbikað plan. Einnig er inngangur að sunnanverðu. Húsið er í þokkalega lagi að utan, gluggar, gler og veggir eru í allgóðu ástandi. Þak hússins þarf viðgerðar við.  Húsið er þiljað af að innanverðu  í þrjá hluta. Í syðsta partinu eru þrjú herbergi á jarðhæð og eitt í risi, snyrtingar og geymsla. Miðrýmið er með geymslulofti og þiljað af með léttum veggjum.  Hitun með ofnakerfi. Nyrsta hólfið er eitt rými, þar er hitablásari.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Faseignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900. 

:: meira

Sævarstígur 2, efri hæð, Sauðárkróki

Þriggja herbergja íbúð

Til sölu er þriggja herbergja, 60,1 m2 íbúð á efri hæð hússins við Sævarstíg 2, Sauðárkróki. Með íbúðinni fylgir 18,1 m2 geymsla á neðri hæð. Húsið er í góðu ástandi að utan, klætt með steni og einangrað, gluggar, hurðir og þakjárn í góðu lagi. Inngangur er um tröppur að vestan.  Í íbúðinni eru þrjú herbergi með plastparketi á gólfum, geymsla. eldhús með ljósri beyki innréttingu og baðherbergi. Korkdúkur er á gólfum gangs og eldhúss.

Ásett söluverð kr. 10 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900

:: meira

Kaupvangstorg 1, Sauðárkróki

Skrifstofu/verlsunarhúsnæði á jarðhæð, 117 m2

Til sölu er jarðhæð hússins við Kaupvangstorg 1, Sauðárkróki, 117,9 m2 verslunar eða skrifstofuhúsnæði. Húsnæðið er í tveimur hlutum, að austan við Aðalgötu er rúmgott dúklagt anddyri og afþiljuð tvö herbergi. Í vestara hluta eru tvö herbergi og kaffiaðstaða. Plastparket er þar á gólfum. Í húsnæðinu er snyrting og lítil geymsla. Með eigninni fylgir hlutdeild í geymslukjallara sem er undir vestur hlutanum. Inngangur er að austan frá Aðalgötu. Einnig er sameiginlegur inngangur að norðan með efri hæðum.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 4535900

:: meira

Sumarhús í landi Móskóga í Fljótum

Timburhús 45,9 m2.

Til sölu er 45,9 m2 sumarhús í landi Móskóga í Fljótum, Skagafirði. Húsið var byggt úr timbri árið 1989 og telst í góðu ástandi. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhúskrókur og snyrting. Kynding er með rafmagni. Leigulóð 598 m2.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Jörðin Syðri-Brekkur í Blönduhlíð

Til sölu er jörðin Syðri-Brekkur í Akrahreppi, Skagafirði. Jörðin er í Blönduhlið. Vegalengd til Sauðárkróks er 24,5 km. Land jarðarinnar er áætlað 290 ha að stærð, þar af u.þ.b. 15 ha ræktaðir. Jörðin er vel staðsett með góðu útsýni yfir héraðið. Á jörðinni eru gömul fjárhús og hlöður. Íbúðarhús var steypt 1949. Húsið þarfnast verulegs viðhalds.  Hitaveita var lögð 2006.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 og 864 5889

:: meira

Víðigrund 6, Sauðárkróki

4 herbergja íbúð á annari hæð, 103 m2

Til sölu er fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 6, Sauðárkróki. Húsið er í þokkalegu ástandi að utanverðu. Á stigagangi er nýtt teppi og veggir eru nýmálaðir. Í íbúðinni er parketlagður gangur og stofa þaðan sem gengið er út á vestursvalir, þrjú herbergi að austanverðu, eldhús með hvítri innréttingu ( rennihurðir á skápum), baðherbergi með flísalögðu gólfi, hvítum tækjum og sturtu í kari og þvottahús við eldhúsið með vaski og tengi fyrir þvottavél. Skápar eru í einu herbergja.

Eigandi óskar eftir tilboðum í íbúðina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Sæmunargata 5, 2.hæð, Skr.

Tveggja herb. 50 m2. íbúð auk geymslu.

Tveggja herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 50,1 m2, með fylgir 4,6 m2 sérgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Anddyri er flísalagt, parketlegt herbergi og rými þar sem er teppalögð stofa og eldhúskrókur með hvítri innréttingu með beykilistum og borðplötu. Gólf við eldhúskrókinn er flísalagt. Hvítar plötur í loftum. Snyrtileg íbúð.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina..

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Sæmundargata 5, Skr.

Einstaklingsíbúð, 37 m2 auk geymslu.

Einstaklingsíbúð á jarðhæð í húsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 37,6 m2. Með fylgir  4,6 m2s érgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Í íbúðinni er parketlagt rými þar sem er stofa með nýju parketi og eldhúskrókur með hvítri innréttingu. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og sturtuklefa.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Túnbraut 8, efri hæð, Skagaströnd.

Rúmgóð 4 herb. íbúð, 133,6 m2. Bílskúr 23,2 m2

Efri hæð hússins við Túnbraut 7, Skagaströnd. Húsið var steypt 1965. Árið 2003 var sett nýtt litað stál á þak hússins. Með íbúðinni fylgir bílskúr. Í íbúðinni er flísalögð forstofa, nýmálaður og snyrtilegur stigagangur, þvottahús, rúmgóð stofa og borðstofa með parketi, eldhús, þrjú herbergi og nýuppgert baðherbergi, flísalagt með nýrri innréttingu.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 5, efri hæð, Skr.

6 herbergja íbúð auk riss, 203 m2.

Aðalgata 5, efri hæð, Sauðárkróki. Syðri hluti hússins er úr timbri, en norðurhlutinn steyptur. Inngangur að norðan í flísalagða forstofu með skápum. Teppalagður stigi upp, skápar á stigapalli. Herbergi með eikarparketi, gangur, stofa og herbergi með parketi. Arin í stofu. Útgangur frá stofu út á steypt þak með skjólgirðingum. Rúmgott eldhús með korkflísum á gólfi, eyja með eldavél og háfi, sprautaðar skápahurðir og borðplötur úr límtré. Í eldri hluta eru þrjú rúmgóð herbergi með timburgólfum og panel í loftum, skápar í tveimur herbergja. Lítil snyrting. Baðherbergi, dúklagt gólf og veggir, sturta, kar og ljós innrétting. Hringstigi upp í ris þar sem er parketlagt rými klætt panel. Húsið var svo til allt endurnýjað 1992 þ.m.t. vatns- og miðstöðvarlagnir, gólfefni, innréttingar og fl.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Sæmundargata 7a, Skr.

Skrifstofuhúsnæði og fundarsalir, alls 266 m2.

Sæmundargata 7a, Sauðárkróki. Steypt hús á tveimur hæðum. Húsið þarfnast viðhalds að utan.Á neðri hæð eru skrifstofur, eldhúskrókur og geymslur. Á efri hæð er rúmgóður parketlagður fundarsalur, vel búið eldhús, snyrtingar, minni fundarsalur og tvö teppalögð herbergi. Teppalagður stigi á milli hæða.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Aðalgata 20, Skr.

Einbýlishús, 512 m2.

Aðalgata 20, Sauðárkróki, Briemshús, er múrhúðað timburhús, tvær hæðir, ris og kjallari. Á þaki er nýlegt járn og lokið er við að endurnyja hluta af gluggum. Ris (55,9 m2) er óinnréttað, en með góðri lofthæð sem býður upp á mikla möguleika. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús og baðherbergi. Inngangur að norðan og austan. Á neðri hæð er verslunarpláss (130 m2) að vestanverðu við Aðalgötuna í nokkuð góðu ástandi. Á hæðinni eru tvö herbergi að vestanverðu og snyrting. Íbúð er 192 m2. Kjallari er undir öllu húsinu með góðri lofthæð sem má vel nýta sem vinnuaðstöðu. Vatnslagnir á milli hæða og frárennslislagnir eru nýlegar.

Óskað er eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira
 

© HINIR SÖMU SF. SKAGAFJÖRÐUR.COM ER KEYRÐUR Á SMALA xL 2