Fasteignasala Sauðárkróks


Fasteignasala Sauðárkróks 
Suðurgötu 3
550 Sauðákróki
Símar: 453 5900 &
864 5889
Fax 453 5931

Ágúst Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Sölumaður:
Anna J. Hjartardóttir
Netfang: strimill@simnet.is

 

Hólmagrund 4, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr

Til sölu er húseignin við Hólmagrund 4, Sauðárkróki. Einbýlishús á einni hæð, 105,4 m2, steypt 1963. Með fylgir 50 m2 bílskúr byggður 1979. Húsið er í þokkalegu ástandi að utanverðu, m.a. þakjárn og rennur frá 1990 u.þ.b. Timburpallur með skjólgirðingnum vestan við bílskúr. M.a. baðherbergi og eldhús endurnýjað. Í íbúðinni er flísalögð forstofa með skápum, þrjú dúklögð herbergi, skápar í tveimur herbergja, gangur, eldhúskrókur og stofa með eikarparketi á gólfum, baðherbergi er flísalagt með hvítum tækjum, innréttingu og sturtuklefa. Í eldhúsi er ljós innrétting með dökkgráum borðplötum og dúkur á gólfi. Inngangur að vestan í þvottahús með geymslu þar við. Nýleg útihurð við þvottahús.

Bílskúr er með einni stórri hurð með rafnknúnum opnara.Heitt vatn og rafmagn er lagt í skúrinn.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900.

:: meira

Smáragrund 5, e.h. Skr.

5 herb. 137 m2 íbúð.

Smáragrund 5, efri hæð, Sauðárkróki. 5 herbergja íbúð í steyptu tvíbýlishúsi sem byggt var 1959. Nýtt járn og pappi á þaki. Inngangur í flísalagt anddyri. Teppalagður stigi upp. Skápar á stigagangi. Fjögur herbergi með plastparketi. Flísalögð stofa. Flísalagt baðherbergi með innréttingu. Í eldhúsi er hvít innrétting og flísar á gólfi. Búr við eldhús. Þvottahús og geymsla inn af. Flísalagður rúmgóður gangur. Litlar suðursvalir við stofu.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Sumarhús í landi Móskóga í Fljótum

Timburhús 45,9 m2.

Til sölu er 45,9 m2 sumarhús í landi Móskóga í Fljótum, Skagafirði. Húsið var byggt úr timbri árið 1989 og telst í góðu ástandi. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhúskrókur og snyrting. Kynding er með rafmagni. Leigulóð 598 m2.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Sæmundargata 9, neðri hæð, Sauðárkróki

Fimm herbergja 97 m2 íbúð í tvíbýlishúsi með 29 m2 bílskúr

Til sölu er neðri hæð hússins við Sæmundargötu 9, Sauðárkróki. Íbúðin er fimm herbergja, alls 97,8 m2. Með fylgir 29,4 m2 bílskúr. Að utan er húsið í þokkalegu ástandi, gluggar eru nýlegir, þakjárn og útihurðir í sæmilegu ástandi. Húsið var byggt 1925 og bílskúr árið 1980. 

Flísalögð forstofa. Á gólfum stofu og þriggja herbergja er parket. annars dúkur. Hvít innrétting er í eldhúsi og nýleg eldavél. Lítið þvottahús er inn af eldhúsi. Á baðherbergi er flísalagt gólf, hvít tæki og sturtuklefi.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900. 

:: meira

Jörðin Syðri-Brekkur í Blönduhlíð

Til sölu er jörðin Syðri-Brekkur í Akrahreppi, Skagafirði. Jörðin er í Blönduhlið. Vegalengd til Sauðárkróks er 24,5 km. Land jarðarinnar er áætlað 290 ha að stærð, þar af u.þ.b. 15 ha ræktaðir. Jörðin er vel staðsett með góðu útsýni yfir héraðið. Á jörðinni eru gömul fjárhús og hlöður. Íbúðarhús var steypt 1949. Húsið þarfnast verulegs viðhalds.  Hitaveita var lögð 2006.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 og 864 5889

:: meira

Skagfirðingabraut 23, neðri hæð, Sauðárkróki

3-4 herbergja íbúð

Til sölu er 89 m2 íbúð á neðri hæð tvíbýlishússins við Skagfirðingabraut 23, Sauðárkróki. Íbúðin er 3-4 herbergja. Húsið var steypt árið 1948. Í fyrra (2009) var það klætt að utan með plasthúðuðum plötum. Gluggar eru í lagi svo og útihurðir. Flísalögð forstofa, lítið eldhús með plast/beykiinnréttingu og þvottahús.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900 & 864 5889.

:: meira

Víðigrund 14, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð á 1. hæð

Til sölu er tveggja herbergja, 61,6 m2 íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 14, Sauðárkróki. Með fylgir 5 m2 sérgeymsla á jarðhæð auk sameiginlegrar aðstöðu. Húsið var steypt 1975 og er í nokkuð góðu ástandi að utanverðu. Í íbúðinni er herbergi, stofa og eldhús með parketi. Gott skápapláss. Útgangur frá stofu á rúmgóðar svalir. Nýleg eldvarnarhurð við stigagang. Snyrtileg sameign.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900.

:: meira
Raftahlíð 68, Skr.
Raftahlíð 68, Skr.

Raftahlíð 68, Sauðárkróki

Raðhús á einni hæð með bílskúr. 3 herbergja

Til sölu er húseignin við Raftahlíð 68, Sauðárkróki. Þriggja herbergja, steypt raðhús á einni hæð. Íbúðin er 82,5 m2 og bílskúr 25,9 m2. Húsið var byggt 1977. Timburpallur með skjólgirðingum austan við húsið. Hellulaögn vestan við með hitalögn. Flísalögð forstofa. Tvö herbergi dúklögð, stofa  og hol með parketi.

Ásett verð 18 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900.

:: meira

Knarrarstígur 4, Sauðárkróki

Tveggja herbergja 64 m2 íbúð á neðri hæð

Til sölu er 2ja herbergja íbúð á neðri hæð að austan í fjórbýlishúsinu við Knarrarstíg 4, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1947.  Eignin er í nokkuð góðu ástandi að utan, þ.á.m. gluggar og hurðir. Í íbúðinni eru tvö herbergi með eikarparketi, þvottahús, eldhús og baðherbergi. Inngangur að norðan. Íbúðin er í góðu ástandi. Laus strax.

Ásett verð kr. 8,8 milj.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, s. 453 5900.

:: meira
Skagfirðingabraut 41, Skr.
Skagfirðingabraut 41, Skr.

Skagfirðingabraut 41, neðri hæð, Sauðárkróki

Fjögurra herbergja 115 m2 íbúð

Boðin er til sölu íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsinu við Skagfirðingabraut 41, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1958.  Í íbúðinni er flísalögð forstofa,  þrjú parketlögð herbergi og stofa, flísalagt baðherbergi uppgert, eldhús með nýlegri viðarinnréttingu, þvottahús og geymslur. Pallur sunnan við húsið. Snyrtileg og rúmgóð íbúð.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina. Möguleiki á skiptum á stærri eign.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks, sími 453 5900.

:: meira

Freyjugata 44, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð, 91,3 m2.

Til sölu er húsið við Freyjugötu 44, Sauðárkróki, steypt einbýlishús á einni hæð, byggt 1946. Eignin er í nokkuð góðu ástandi að utanverðu. Timburpallur vestan við húsið með skjólgirðingum. Inngangur frá Freyjugötunni og að norðan í þvottahús. Í íbúðinni eru tvö herbergi, samliggjandi stofur, uppgert flísalagt baðherbergi, lítið herbergi við gang,  eldhús og þvottahús.Nýtt gler í gluggum.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900

:: meira

Skagfirðingabraut 37, Skr.

Efri hæð og ris ásamt bílskúr.

Efri hæð og ris í tvíbýlishúsi við Skagfirðingabraut 37, Sauðárkróki. Byggingarár 1959. Með fylgir 46,3 m2 bílskúr. Íbúðin er alls 157,5 m2. Á hæðinni eru tvö herbergi, annað með skápum, rúmgóð stofa, hol, þvottahús/geymsla, eldhús og baðherbergi. Parket er á gólfum nema á baðherbergi. Í risi eru tvö herbergi auk rýmis sem getur nýtst vel sem sjónvarpsherbergi. Í risi er parket á gólfum. Íbúðin er nýlega máluð.Stórar suðursvalir fylgja íbúðinni. Rúmgóð og björt íbúð.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Skagfirðingabraut 49, neðri hæð, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð, 87 m2

Til sölu er íbúð á neðri hæð hússins við Skagfirðingabraut 49, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1970. Íbúðin er tveggja herbergja. Inngangur að norðan í sameiginlegt flísalagt þvottahús. Þar við er geymsla. Í eldhúsi er hvít innrétting og ljósbrúnar flísar á gólfi. Stofa er að sunnnverðu í íbúðinni með plastparketi á gólfi. Herbergi með plastparketi og skápum. Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítum tækjum og skáp.

Nýlegar miðstöðvarlagnir eru í íbúðinni.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Víðigrund 16, Sauðárkróki

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 16, Sauðárkróki. Húsið var byggt 1975. Málað fyrir fjórum árum og er í þokkalegu ástandi að utan. Íbúðin er 56,4 m2 og með fylgir sérgeymsla á jarðhæð 5,2 m2. Á gólfum er parket nema á baðherbergi. Skápar við inngang. Herbergi að norðan með skápum. Stofa að sunnan. Rimlagluggatjöld fyrir gluggum. Í eldhúsi er ljósbrún innrétting með grænum borðplötum. Á baðherbergi er ljósbrún innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél, hvítum tækjum og kari. Útgangur frá stofu. Sameign og stigagangur er snyrtilegur með ljósum gólfdúk.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Dalatún 19, Sauðárkróki

Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr

Dalatún 19, Sauðárkróki er einbýlishús á tveimur hæðum með 48 m2 bílskúr sem stendur norðan við húsið. Íbúðin er fimm herbergja auk stofu, 163 m2. Húsið er í góðu ástandi að utan, m.a. er þak nýlega málað. Neðri hæð: Flísalögð forstofa, þar við er snyrting með flísalögðu gólfi, hvítum tækjum og innréttingu. Einnig er við anddyrið rúmgott dúklagt herbergi. Einnig er gengið inn að norðan í flísalagt þvottahús með skápum. Rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu frá Trésmiðjunni Borg og ljósum gólfflísum. Í öllum loftum neðri hæðar eru plasthúðaðar hvítar plötur. Inn af eldhúsi er parketlögð borðstofa og stofa með teppi. Á efri hæð er rúmgott parketlagt sjónvarpshol með panel í lofti, þrjú parketlögð herbergi, baðherbergi með gólfdúk og nýlegri innréttingu og geymsla.

Bílskúr er frágenginn nema að klæðningu vantar í loft. Sjálfvirkur hurðaopnari.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðigrund 6, Sauðárkróki

4 herbergja íbúð á annari hæð, 103 m2

Til sölu er fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 6, Sauðárkróki. Húsið er í þokkalegu ástandi að utanverðu. Á stigagangi er nýtt teppi og veggir eru nýmálaðir. Í íbúðinni er parketlagður gangur og stofa þaðan sem gengið er út á vestursvalir, þrjú herbergi að austanverðu, eldhús með hvítri innréttingu ( rennihurðir á skápum), baðherbergi með flísalögðu gólfi, hvítum tækjum og sturtu í kari og þvottahús við eldhúsið með vaski og tengi fyrir þvottavél. Skápar eru í einu herbergja.

Eigandi óskar eftir tilboðum í íbúðina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Víðigrund 22, Skr.

3 ja herb. 82,3 m2 íbúð á 3 hæð, norðurendi.

Þriggja herbergja íbúð á 3. hæð til hægri í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 22, Sauðárkróki. Byggingarár 1978. Húsið er nokkuð góðu ástandi að utan. Íbúðin er 82,3 m2 og með fylgir 4,9 m2 sérgeymsla á jarðhæð. Í íbúðinni eru flísalagður gangur og stofa þaðan sem gengið er út á rúmgóðar vestursvalir, flísalagt baðherbergi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél, eldhús með hvítri innréttingu, parketi á gólfi og uppþvottavél og tveimur dúklögðum herbergjum,  skápar í öðru.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni. 

:: meira

Víðigrund 4, Skr.

4 herbergja 94,4 m2 íbúð á annari hæð

Fjögurra herbergja íbúð 94,4 m2 á 2.  hæð. Verið er að klæða vesturgafl blokkarinnar að utan og einangra. Flísalagt anddyri, stigagangur er teppalagður. Í íbúðinni er stofa og gangur með gengheilu stafaparketi,  þrjú herbergi, eitt dúklagt og með skápum, tvö með pastparketi, baðherbergi með dúkflísum á gólfi, flísum á vegg við kar, hvítum tækjum og tengi fyrir þvottavél, eldhús með hvítri innréttingu og nýlegum gólfdúk. Sér 4,8 m2 geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Aðalgata 14, efri hæð, Skr.

Skrifstofuhúsnæði, 122 m2

Boðið er til sölu skrifstofuhúsnæði á efri hæð hússins við Aðalgötu 14, Sauðárkróki. Húsið er í góðu ástandi að utanverðu, þak, gluggar og gler var endurnýjað fyrir nokkrum árum  og húsið er nýlega málað. Á hæðinni eru fjögur rúmgóð herbergi með nýlegum síma- og tölvulögnum í stokkum. Að auki er minna herbergi sem nú er nýtt sem skjalageymsla, minni geymsla, eldhús og baðherbergi. Í risi er geymsla. Inngangur að norðanverðu.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsinar hjá fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Sæmunargata 5, 2.hæð, Skr.

Tveggja herb. 50 m2. íbúð auk geymslu.

Tveggja herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 50,1 m2, með fylgir 4,6 m2 sérgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Anddyri er flísalagt, parketlegt herbergi og rými þar sem er teppalögð stofa og eldhúskrókur með hvítri innréttingu með beykilistum og borðplötu. Gólf við eldhúskrókinn er flísalagt. Hvítar plötur í loftum. Snyrtileg íbúð.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina..

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Sæmundargata 5, Skr.

Einstaklingsíbúð, 37 m2 auk geymslu.

Einstaklingsíbúð á jarðhæð í húsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 37,6 m2. Með fylgir  4,6 m2s érgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Í íbúðinni er parketlagt rými þar sem er stofa með nýju parketi og eldhúskrókur með hvítri innréttingu. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og sturtuklefa.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðigrund 2, jarðhæð, Skr.

2ja herb. íbúð, 59 m2 auk 7 m2 geymslu

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 2, Sauðárkróki. Byggingarár húss var 1971. Í íbúðinni er stofa með plastparketi;  herbergi með skápum og parketi; gangur með parketi og skáp;  flísalögð snyrting með sturtuklefa og hvítum tækjum og eldhús með dúklögðu gólfi og gulri og hvítri innréttingu. Útgangur frá stofu á steypta verönd sunnan við húsið.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fateignasölunni.

:: meira

Laugatún 10, Sauðárkróki

Parhús á einni hæð, 5 herbergi, 129 m2

Laugatún 10, Sauðárkróki. Steypt parhús á einni hæð, byggt 1992. Eignin er alls 129,5 m2. Húsið er nýmálað að utan. Vestan við húsið er malbikað bílastæði og hellulögð gangstétt með hitalögn. Lóðin er í góðri rækt. Dúklagt anddyri. Parketlögð stofa. Eldhús með gulri innréttingu, beykiborðplötum, uppþvottavél og dúklögðu gólfi. Fjögur dúklögð herbergi, öll með skápum. Dúklagt þvottahús með hillum og borði. Útgangur frá þvottahúsi suður á lóð. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum við kar og sturtu, hvít tæki. Hol með gólfdúk. Eignin er í nokkuð góðu ástandi.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Túnbraut 8, efri hæð, Skagaströnd.

Rúmgóð 4 herb. íbúð, 133,6 m2. Bílskúr 23,2 m2

Efri hæð hússins við Túnbraut 7, Skagaströnd. Húsið var steypt 1965. Árið 2003 var sett nýtt litað stál á þak hússins. Með íbúðinni fylgir bílskúr. Í íbúðinni er flísalögð forstofa, nýmálaður og snyrtilegur stigagangur, þvottahús, rúmgóð stofa og borðstofa með parketi, eldhús, þrjú herbergi og nýuppgert baðherbergi, flísalagt með nýrri innréttingu.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 5, efri hæð, Skr.

6 herbergja íbúð auk riss, 203 m2.

Aðalgata 5, efri hæð, Sauðárkróki. Syðri hluti hússins er úr timbri, en norðurhlutinn steyptur. Inngangur að norðan í flísalagða forstofu með skápum. Teppalagður stigi upp, skápar á stigapalli. Herbergi með eikarparketi, gangur, stofa og herbergi með parketi. Arin í stofu. Útgangur frá stofu út á steypt þak með skjólgirðingum. Rúmgott eldhús með korkflísum á gólfi, eyja með eldavél og háfi, sprautaðar skápahurðir og borðplötur úr límtré. Í eldri hluta eru þrjú rúmgóð herbergi með timburgólfum og panel í loftum, skápar í tveimur herbergja. Lítil snyrting. Baðherbergi, dúklagt gólf og veggir, sturta, kar og ljós innrétting. Hringstigi upp í ris þar sem er parketlagt rými klætt panel. Húsið var svo til allt endurnýjað 1992 þ.m.t. vatns- og miðstöðvarlagnir, gólfefni, innréttingar og fl.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Sæmundargata 7a, Skr.

Skrifstofuhúsnæði og fundarsalir, alls 266 m2.

Sæmundargata 7a, Sauðárkróki. Steypt hús á tveimur hæðum. Húsið þarfnast viðhalds að utan.Á neðri hæð eru skrifstofur, eldhúskrókur og geymslur. Á efri hæð er rúmgóður parketlagður fundarsalur, vel búið eldhús, snyrtingar, minni fundarsalur og tvö teppalögð herbergi. Teppalagður stigi á milli hæða.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Aðalgata 20, Skr.

Einbýlishús, 512 m2.

Aðalgata 20, Sauðárkróki, Briemshús, er múrhúðað timburhús, tvær hæðir, ris og kjallari. Á þaki er nýlegt járn og lokið er við að endurnyja hluta af gluggum. Ris (55,9 m2) er óinnréttað, en með góðri lofthæð sem býður upp á mikla möguleika. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús og baðherbergi. Inngangur að norðan og austan. Á neðri hæð er verslunarpláss (130 m2) að vestanverðu við Aðalgötuna í nokkuð góðu ástandi. Á hæðinni eru tvö herbergi að vestanverðu og snyrting. Íbúð er 192 m2. Kjallari er undir öllu húsinu með góðri lofthæð sem má vel nýta sem vinnuaðstöðu. Vatnslagnir á milli hæða og frárennslislagnir eru nýlegar.

Óskað er eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Hólavegur 27, Skr.

Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr.

Hólavegur 27, Sauðárkróki. Einbýlishús á tveimur hæðum,  232,2 m2. Bílskúr viðbyggður norðan við, 33,6 m2. Innangengt úr þvottahúsi í bílskúr. Húsið er hlaðið og steypt, byggingarár 1958. Lóð vestan við húsið í góðri rækt. Á neðri hæð er flísalögð forstofa, stofa og borðstofa með plastparketi, hol og 2 herbergi með plastparketi og eitt með gólfdúk, eldhús með nýlegri innréttingu úr rauðum eikarspóni og nýjum tækjum,  snyrting og þvottahús. Parketlagður stigi upp. Á efri hæð er hol og rými þar við auk þriggja rúmgóðra herbergja með plastparketi.  Flísalögð snyrting með sturtuklefa. Nýlegt gler í gluggum. Miðstöðvarofnar nýlegir.

Óskað eftir tilboðum. Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira
 

© HINIR SÖMU SF. SKAGAFJÖRÐUR.COM ER KEYRÐUR Á SMALA xL 2