Skagafjörđur.com

Skagafjörđur.com
Skagafjörður.com
Skagafjörđur.com - RSS
VEĐUR 08.02.2010
Veđurstofa Íslands
Hraun : 0 0°C
Bergstaðir : 0 0°C
Sauðanesv. : 0 0°C
Reykjavík : 0 0°C
Nautabú 14:00 SSA 6 2°C
Akureyri : 0 0°C
Blönduós : 0 0°C
Vegagerđin
Þverárfjall 02:40 N 1  9 °C
Vatnsskarð 02:30 SA 3  8 °C
Öxnadalsh. 02:40 ANA 1  8 °C
Siglufjarðv. 02:30 SSA 1  11 °C
Víkurskarð 02:40 ASA 3  9 °C
Holtavörðuh. 02:40 N 2  8 °C
Hafnarfjall 02:30 SA 4  14 °C
Steingrímsfjh. 02:40 ANA 2  7 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
PISTLAR
09. júlí 2009 - kl. 16:31
Ráðherra ber að taka vannýttar tegundir úr kvóta án tafar
Þórður Már Jónsson skrifar
::Lesa
08. júlí 2009 - kl. 16:11
Að halda áfram
Sigurður Árnason skrifar
::Lesa
08. júlí 2009 - kl. 11:54
Meirihlutinn bókar uppgjöf
Gísli Gunnarsson skrifar
::Lesa
08. júlí 2009 - kl. 10:06
Á sjó með Málmey - 6. veiðiferð ársins 2009
Gústi Mar skrifar
::Lesa

Fasteignasala Sauđárkróks
01. september 2010
Hólmagrund 4, Sauðárkróki
Einbýlishús á einni hæð með bílskúr
::Skođa
31. ágúst 2010
Smáragrund 5, e.h. Skr.
5 herb. 137 m2 íbúð.
::Skođa

Fréttir | 03. september 2009 - kl. 10:52
Skagafjörður.com í eina sæng með Feyki.is
Hvernig væri að prófa www.feykir.is/skagafjordur
Nú hefur Skagafjörður.com sameinast Feyki.is og því hefur verið hætt að uppfæra Sk.com. Síðan verður engu að síður á netinu áfram en á nýrri slóð - www2.skagafjordur.com - og því áfram hægt að skoða myndir og eldri fréttir eins og hverjum hugnast.
Meira
Fréttir | 28. ágúst 2009 - kl. 14:15
Samkeppnisstofnun fylgist með Mjólku-sölu
Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að Samkeppnisstofnun muni fylgjast náið með hugsanlegum kaupum KS en í ljósi þess að KS er í nánu samstarfi við Mjólkursamsöluna hafa ýmsir bent á að salan gæti stangast á við samkeppnislög.
Meira
Íţróttir | 28. ágúst 2009 - kl. 14:13
Nóg framundan hjá körfuboltaköppum Tindastóls
Meistaraflokkur Tindastóls í körfubolta hefur þekkst boð Þórsara á Akureyri um að taka þátt í Greifamótinu sem er árlegt æfingamót þeirra Akureyringa, en það verður haldið dagana 11. og 12. september næstkomandi. Helgina þar á undan mun lið Tindastóls taka þátt í móti á Ísafirði og því í nógu að snúast hjá körfuboltaköppunum.
Meira
Fréttir | 28. ágúst 2009 - kl. 08:39
Sundlaugarbygging potast upp og niður
Ljósmyndari Sk.com var á Hofsósi í gær og notaði tækifærið og smellti nokkrum myndum af framkvæmdum við sundlaugina sem verið er að byggja þar. Það var allt morandi í iðnaðarmönnum á staðnum og raunar flestir innandyra þegar myndirnar voru teknar.
Meira
Íţróttir | 28. ágúst 2009 - kl. 08:35
Birna Valgarðs fór á kostum
Það eru ekki bara íslensku fótboltastelpurnar sem eru á fullri ferð þessa dagana. Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tók írskar stöllur sínar í bakaríið í B-deild Evrópukeppninnar. Skagfirðingurinn Birna Valgarðsdóttir fór á miklum kostum í leiknum, var stigahæst með 21 stig, tók 11 fráköst og hélt sterkasta leikmanni í Íra í heljargreipum.
Meira
Fréttir | 27. ágúst 2009 - kl. 15:32
Nýsköpunarglaðir skagfirskir nemendur og skólar
Eru ekki Skagfirðingar bara langflottastir?
Sagt er frá því á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að nú er búið að velja til úrslita í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda árið 2009. Af þeim 2700 umsóknum sem bárust komust 45 nemendur í úrslit með verkefni sín. Nemendur þessir koma frá 23 skólum af öllu landinu en skemmst er frá því að segja að af þessum 45 nemendum sem komust áfram með verkefni sín eru 10 nemendur með 8 verkefni úr grunnskólunum í Skagafirði.
Meira
Frá busavígslu 2005.
Frá busavígslu 2005.
Fréttir | 27. ágúst 2009 - kl. 11:58
Busavígslan slegin af
Nýnemadagur verður haldinn í hennar stað síðar á önninni
Stjórnendur Fjölbrautaskólans og Nemendafélagsins hafa á fundi sínum í dag ákveðið að fella niður boðaða dagskrá busavígslu á morgun. Fram kemur á vef skólans að ástæða þessarar ákvörðunar er að tilteknir nemendur og aðilar utan skólans hafa beitt nýnema ofbeldi og valdið eignatjóni í nafni skólans og Nemendafélagsins og við það verður ekki unað.
Meira
Úr óperunni Telephone. Mynd: JH
Úr óperunni Telephone. Mynd: JH
Fréttir | 27. ágúst 2009 - kl. 10:16
Alexandra í tveimur óperum
Alexandra Chernyshova hefur verið að vinna að og undirbúa næsta óperuverkefni hjá sér, um er að ræða tvær stuttar óperur, annars vegar The Telephone eftir G. Menotti og hins vegar Biðin eftir M. Tariverdiev. Frumsýning verður á Akureyrarvöku 29. ágúst í Samkomuhúsinu.
Meira
Fréttir | 27. ágúst 2009 - kl. 09:08
Gleymdu að lýsa kröfum uppá um 4 milljarða
Málið grafalvarlegt og vanræksla lögmannsstofunnar óskiljanleg
Mistök við kröfulýsingu á kröfum Stapa lífeyrissjóðs vegna nauðasamninga Straums-Burðaráss, þannig að kröfunni var lýst of seint. Um var að ræða kröfu upp á um 4 milljarða króna. Ef allt fer á versta veg, getur tjónið vegna mistaka lögmannsstofu við kröfulýsinga rýrt ávöxtun Stapa um 2-4%. Stapi hefur ráðið Logos lögmannsstofu til að leita leiða til að tryggja að krafan á hendur Straumi Burðarási komist að.
Meira
Fréttir | 27. ágúst 2009 - kl. 09:05
Nýr og meiri vefur!
Á morgun, föstudaginn 28. ágúst, er áætlað að nýr og meiri Feykir.is verði tekinn í notkun hjá Nýprenti en þá rennur loks upp sú stund að Skagafjörður.com og Feykir.is fari í eina sæng. Nýji vefurinn verður á slóðinni www.feykir.is og þar ættu hinir fjölmörgu fastakúnnar Sk.com að geta fundið sig því Herra Hundfúll og aðrir góðkunningjar hans færa sig yfir á nýju síðuna.
Meira
Fréttir | 26. ágúst 2009 - kl. 18:41
Metaðsókn hjá Byggðasafni Skagfirðinga
Samtals hafa 2.572 gestir skoðað sýningarnar í Minjahúsinu á Sauðárkróki það sem af er þessu ári. Það ku vera ríflega þúsund fleiri gestir en sóttu Minjahúsið heim í fyrra. Langflestir gestanna eru Íslendingar. Á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga segir að sýningar í Minjahúsinu verða opnar samkvæmt samkomulagi í haust og vetur.
Meira
Hnátumótsmeistararnir. Mynd: Valbjörn G.
Hnátumótsmeistararnir. Mynd: Valbjörn G.
Íţróttir | 26. ágúst 2009 - kl. 16:37
Hnátumótsmeistarar í 6. flokki kvenna
Á heimasíðu Tindastóls er sagt frá því að þann 16. ágúst hélt hress hópur Tindastólsstúlkna úr 6. flokki b liða austur á Egilsstaði og tók þátt í úrslitum í Hnátumóti KSÍ, fyrir Norður- og Austurland. Í raun er um Íslandsmót að ræða, sem er skipt eftir landshlutum í þessum aldursflokki. Stelpurnar stóðu sig allar frábærlega og enduðu uppi sem sigurvegarar.
Meira

Til baka

 

NETKÖNNUN
Engin könnun í gangi núna.
DAGSKRÁIN
08. september 2010 - kl. 11:15
Vísindi og grautur
Hin árlega fyrirlestrarröð ferðamáladeildar Háskólans á Hólum Vísindi og grautur hefur göngu sína miðvikudaginn 8. sept. og það er Kristín Jónsdóttir, verkefnastjóri Á Sturlungaslóð sem ríður á vaðið.
::nánar
08. september 2010 - kl. 17:15
Tindastóll - Árborg
Komast Tindastólsmenn upp í 2. deild? Það ræðst laugardaginn 8. september þegar Árborg kemur í heimsókn á Sauðárkróksvöll. Nú verða allir að mæta á völlinn og styðja Stólana. Áfram Tindastóll!!!
::nánar
NÆSTU FRÉTTIR
26. ágúst 2009 - kl. 16:28
Bandarískir nemendur á námskeiði á Hólum
25. ágúst 2009 - kl. 12:00
Vilja sorpurðunarsvæði við Brimnes út af aðalskipulagi
25. ágúst 2009 - kl. 11:54
Sveitamarkaður í Ljósheimum á laugardaginn
25. ágúst 2009 - kl. 11:48
Innritun í Tónlistarskóla Skagafjarðar í dag og á morgun
24. ágúst 2009 - kl. 15:55
Metaðsókn að ferðamáladeild
24. ágúst 2009 - kl. 11:14
Valdís var í miklu stuði
24. ágúst 2009 - kl. 09:08
Stefnt að nýjum samningi við menntamálaráðuneytið
24. ágúst 2009 - kl. 09:03
Vel heppnuð Hólahátíð
23. ágúst 2009 - kl. 12:29
Stólarnir heillum horfnir
Tindastóll - Reynir 1-2
22. ágúst 2009 - kl. 11:07
Helga Rós syngur í Hóladómkirkju
21. ágúst 2009 - kl. 15:25
Stórleikur á Sauðárkróksvelli á morgun
Ná Stólarnir að rífa sig upp úr fallsæti?
21. ágúst 2009 - kl. 14:05
Dagrún heldur tónleika í Sauðárkrókskirkju
BILUÐ PLATA 34/2009
Hinn ágæti Hannes Hólmsteinn fór mikinn í morgunógleði Ríkisútvarpsins á dögunum, ræddi þar kreppuna og kepptist sem fyrr við að verja Davíð Oddsson. Hannes var eins og biluð plata sem hjakkaði í sama farinu... enginn sá þetta fyrir, nema Davíð Oddsson auðvitað, meira að segja ég sá þetta ekki... og svo framvegis. Nú má auðvitað deila um það hvort Hannes hafi rétt fyrir sér en mikið óskaplega var þessi bilaða plata þreytandi og leiðinleg til lengdar og nokkuð ljóst að orð Hannesar hafa örugglega gert Dabba karlinum meira ógagn en gagn.
::meira
EKKERT LJÓS Í MYRKRINU? 33/2009
Herra Hundfúll er ekki hrifinn af myrkrinu. Hann hefur heyrt því fleygt að í stóru kreppunni á síðustu öld hafi bæjarbúar skotist milli húsa í myrkrinu lamaðir af myrkfælni. Nú í vikunni hefur verið dimmt á kvöldin á Króknum, enda þungt yfir og rigning, en í götunni sem Hundfúll býr í og í næsta nágrenni hafa ekki verið ljós á ljósastaurunum. Hvort það þykir við hæfi hjá sveitarfélaginu og Rarik í núverandi kreppu að hverfa til myrkurs stóru kreppunnar skal ósagt látið en það er hálf undarlegt að ekki sé haft ljós á ljósastaurunum þegar kvöldin eru orðin svört af myrkri. En kannski er þetta sparnaðarráð í kreppunni?
::meira
LITTLE BOOTS >> NEW IN TOWN >> 33/2009
Það hafa ekki verið neitt stórmerkilegar melódíurnar sem sest hafa á heilann þetta sumarið og sumarsmellirnir frekar fjörlitlir. Hér skal þó mælt með einu lagi sem getur alveg límt sig á heilann. Victoria Hesketh sem kallar sig Little Boots hefur verið að gera það gott með lagið New In Town. Flott lag.
::meira
GRAN TORINO 33/2009
Gran Torino er sögð síðasta myndin sem Clint Eastwood leikur í. Í raun er um lágstemmda mynd að ræða, Clint leikur leiðinda karlskarf sem þolir hvorki nágranna sína eða fjölskyldu. Hann er nýbúinn að missa konuna sína en honum að óvörum reynast Kóreubúarnir í næsta húsi vera hið vænsta fólk og með þeim tekst vinátta. Nágrannarnir lenda upp á kant við hverfisklíkuna og þá tekur sá gamli málin í sínar hendur. Eastwood er í hörkustuði og töffararnir verða ekki svalari en hann. Stjörnur ****
::meira
JÖKULSÁRLÓN TEKIÐ VIÐ SEM DÝPSTA VATN ÍSLANDS >> 1. júlí
Rosalega hlýtur Öskjuvatn að vera svekkt?
::meira
HIÐ SKELFILEGA VUVUZELA >> 26/2009
Útlit er fyrir að Vuvuzela-trompetinn muni ógna geðheilsu fótboltaáhugamanna næsta sumar. Þeir sem fylgst hafa með útsendingum frá Álfukeppninni í knattspyrnu ættu að vera farnir að átta sig á þessu skelfilega vopni Afríkumanna. Höddi Magg hitti naglann á höfuðið þegar hann lýsti þessu skelfilega hljóði sem trompetarnir mynda við suðið í býflugum í þúsundasta veldi. Margir vilja banna vopnið en eins og staðan er í dag er það ólíklegt.
::meira
© Nýprent ehf SKAGAFJÖRÐUR.COM ER KEYRÐUR Á SMALA XL